current location : Lyricf.com
/
Songs
/
Nón lyrics
Nón lyrics
turnover time:2024-04-28 21:01:11
Nón lyrics

Sólbrot yfir nátthaga,

læðist sifji nætur, stelur minni sálarró.

Þögnin þung sem blóð,

brestur tónn eitt sinn fagur.

Kyrrð í vetrarríki.

Myrkrið mýkir glætan gul,

gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný,

nóttin þung sem blý.

Fönnin kæfir sumarilm.

Vetur tekur yfir.

Vonin kom með vorinu

en lifði ekki lengi hér á Góumánuðum,

dó í ánauðum,

stoltið drap þá veiku von.

Kyrrð í vetrarríki.

Rökkvar yfir lífi okkar,

úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin,

hjartans vorboðinn,

nú grafin er í fönn.

Vetur tekur yfir.

Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi,

dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum.

Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig?

Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn?

Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum,

né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið.

Drápu niður fæti illar draumfarir.

Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð.

Comments
Welcome to Lyricf comments! Please keep conversations courteous and on-topic. To fosterproductive and respectful conversations, you may see comments from our Community Managers.
Sign up to post
Sort by
Show More Comments
Sólstafir
  • country:Iceland
  • Languages:Icelandic, English
  • Genre:Metal, Alternative, Rock
  • Official site:http://www.solstafir.net/
  • Wiki:http://en.wikipedia.org/wiki/Solstafir
Sólstafir
Latest update
Copyright 2023-2024 - www.lyricf.com All Rights Reserved