current location : Lyricf.com
/
Songs
/
Vinurinn
Vinurinn
turnover time:2024-05-12 03:41:58
Vinurinn

Hlustið kæru vinir, ég skal segja ykkur sögu,

um einn mann sem allir ættu að kannast við.

Þið þekkið þennan bita og þið ættuð öll að vita,

að hann er miklu, miklu, miklu betri en þið.

Ég sé hann oft á daginn

og mig dreymir hann á nóttunni

og er hann birtist hrekk ég bara í kút.

Ég veit um fullt af konum sem að sofa svo hjá honum

útaf peningum og fríum ferðum út.

Hann var besti vinur minn,

en nú er hann farinn og ég finn,

engan annan eins og hann,

þennan mann.

Þið ættuð öll að þekkja hann og ég er ekki að blekkja

er ég segi að hann sé svalur eins og ís.

Og þó að hann sé tregur og hreint ekki myndarlegur

þá er konan hans eitt heljarmega skvís.

Ég sé þau oft daginn, fara ganga niðrí bæinn

og þau leiðast eins og menntaskólapar.

Ég get ekki opnað blöðin því það er nú meiri kvölin

að sjá mynd af honum nánast allsstaðar

Hann var besti vinur minn,

en nú er hann farinn og ég finn,

engan annan eins og hann,

þennan mann.

Að lokum vil ég segja bara eitt um þennan peyja

hann er ekki sami maður og hann var.

Á okkar skólagöngu fyrir langalangalöngu

við lékum okkur nánast allstaðar.

En núna er hann svona og ég bíð bara og vona

að hann breytist en það gerist ekki neitt

Hann býr við fræga götu hefur sungið inná plötu

fullt af lögum sem að fjalla um ekki neitt

Hann var besti vinur minn

en nú er hann farinn og ég finn

engan annan eins og hann

þennan mann

Já hann var besti vinur minn

en nú er hann farinn og ég finn

engan annan eins og hann

þennan mann

Comments
Welcome to Lyricf comments! Please keep conversations courteous and on-topic. To fosterproductive and respectful conversations, you may see comments from our Community Managers.
Sign up to post
Sort by
Show More Comments
Ingó
  • country:Iceland
  • Languages:Icelandic
  • Genre:Singer-songwriter
  • Official site:https://www.facebook.com/ingovedurgud/
  • Wiki:http://en.wikipedia.org/wiki/Ing%C3%B3_og_Ve%C3%B0urgu%C3%B0irnir
Ingó
Latest update
Copyright 2023-2024 - www.lyricf.com All Rights Reserved