Svo hljótt sem sölnað lauf
féll kveðja þín
Táraflóð skolaði
burt draumum mínum
og inn í hjarta mitt flóði
regn
Koss þinn á húð minni
finn ég vart meir
Ég velti hugsunum fyrir mér
sem leiða mig í horn
Svalur vindur feykir til mín
laufi
Ég mun verða þér langlífari
En ég verð ei aftur
söm/samur
Ég mun ei tapa mér
óháð því hvað gerist og eyðileggur
heim minn
Þú getur ei eyðilaggt mig
Það getur enginn
Einungis ég get það
Ég verð þér langlífari
En ég verð ei aftur söm/samur
Ég sig hér grafkyrr
í þessum dimmu görðum
og get ei annað gert
get einungis beðið eftir því
að veröld mín hægt
rísi á ný
Þögnin er svo tóm
enginn fugl mun syngja á ný
Og hjarta mitt er gert úr gleri
Hve hratt getur það mölvast
Ég bið þess eins að þessi dagur
líði hjá